Kveikti sér í sígarettu við flugtak

Reuters

Lögreglan á Suðurnesjum tók á móti flugfarþega sem hafði kveikt sér í sígarettu á salerni flugvélar Iceland Express með þeim afleiðingum að reykskynjari á salerninu fór í gang. Einn flugfarþega sagði í samtali við mbl.is að umræddur „reykdólgur“ hafi staðið upp og gengið inn á salernið bæði þegar vélin tókst á loft og við lendingu.

Í bæði skiptin urðu flugfreyjurnar að vísa manninum til sætis sem hann gerði. Reykdólgurinn var hinsvegar ekki til vandræða á meðan fluginu stóð nema við flugtak og lendingu, sem fyrr segir.

Flugfarþeginn, sem mbl.is ræddi, segist hafa veitt því eftirtekt að maðurinn hafi verið undir eftirliti lögreglumanna og öryggisvarða á flugstöðinni í Berlín þaðan sem flugvélin flaug í gærkvöldi. Hann sagði ennfremur að áhöfnin hafi komið af fjöllum er hann greindi henni frá þessu, en enginn öryggisvörður var með manninum í vélinni.

Flugfarþeginn segir flugfreyjurnar hafa þó tekið vel á málum og haldið ró sinni. Áhöfnin kallaði eftir aðstoð lögreglu þegar vélin lenti á Keflavíkurflugvelli.

Að sögn lögreglu hafa ekki orðið frekari eftirmál af þessu. Maðurinn var ekki handtekinn heldur ræddu lögreglumenn við hann á vellinum.

Reynt var að fá upplýsingar hjá framkvæmdastjóra Iceland Express við vinnslu fréttarinnar, en ekki náðist í hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert