„Tíminn mun leiða það í ljós en ég sé ekki í fljótu bragði að dómurinn hafi áhrif á störf mín,“ sagði Tryggvi Jónsson sem sakfelldur var í Hæstarétti í gær fyrir þátt sinn í Baugsmálinu. Tryggvi situr í stjórnum nokkurra fyrirtækja, flestum sem hann á sjálfur, og segist hann ekki vita hvaða áhrif dómurinn muni hafa á stjórnarsetu sína. „En ég er tengdur flestum félögum sem eigandi og það er varla hægt að svipta mann eignarrétti.“ Jafnframt hefði aldrei reynt á ákvæðið.