Farþegar Iceland Express voru tæplega áttatíu þúsund í júlí síðastliðnum. Það er 35 prósenta fjölgun frá sama tíma í fyrra. Það sem af er ágústmánuði hefur farþegum einnig fjölgað umtalsvert miðað við ágúst í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Farþegum félagsins fjölgaði á flesta áfangastaði, sem Iceland Express flýgur til.