Ingibjörg Sólrún ræðir stöðu sína

Hugsanlega verður Ingibjörg Sólrún Gísladóttir leidd fyrir Landsdóm.
Hugsanlega verður Ingibjörg Sólrún Gísladóttir leidd fyrir Landsdóm. mbl.is/Árni Sæberg

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi Utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hyggst mæta á óformlegan fund þingflokks Samfylkingarinnar í kvöld.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sagði í samtali við mbl.is að þingflokkurinn hafi boðið Ingibjörgu að koma á fundinn til að gera grein fyrir sínum málum. Hún hafi þegið boðið eftir nokkurn umhugsunarfrest. 

Þórunn segir að Þingflokkurinn hafi gert Björgvini G. Sigurðssyni, fyrrverandi viðskiptaráðherra, sama tilboð en hann hafi enn ekki svarað því hvort hann hyggist ræða við þingflokkinn.

Ingibjörg Sólrún skrifaði á Facebook-síðu sína í gær, að þegar ósköpin hafi dunið yfir á laugardaginn fór hún farið að ráði skjaldbökunnar þegar hún skynjar hættu og dregi sig inn í skelina. „Þar er gott að hugsa. En allt hefur sinn tíma. Nú er ég komin út aftur," segir hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert