Ráðist á mann á áttræðisaldri

Karlmaður á áttræðisaldri liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir líkamsárás á Þórshöfn í nótt. Árásarmaðurinn, sem er tuttugu og þriggja ára gamall karlmaður, hefur verið handtekinn.

Á vef RÚV segir að ungi maðurinn hafi brotist inn til mannsins laust upp úr miðnætti og ráðist á húsráðanda. Þar segir líka að gamli maðurinn búi einn.

Aðkoman mun hafa verið slæm og rannsókn málsins er að mestu lokið.

Maðurinn sem handtekinn var hefur áður komist í kast við lögin. 

Frétt RÚV

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert