Unnu níunda leikinn í röð

Styrmir Snær Þrastarson.
Styrmir Snær Þrastarson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Styrmir Snær Þrastarson átti góðan leik fyrir Belfius Mons þegar liðið hafði betur gegn Kortrijk á útivelli í BNXT-deildinni í körfuknattleik, sameiginlegri efstu deild Belgíu og Hollands, í dag.

Leiknum lauk með sigri Belfius Mons, 100:88, en Styrmir Snær skoraði 10 stig, tók þrjú fráköst og gaf þrjár stoðsendingar á þeim 30 mínútum sem hann lék.

Þetta var níundi sigurleikur Belfius Mons í röð í deildinni en liðið er í efsta sæti deildarinnr með 34 stig, tveimur stigum meira en Mechelen sem á leik til góða á Belfius Mons.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert