Hesthúsaskattur lækkaður

Hesthúsin eru mikið notuð um þessar mundir en standa hins …
Hesthúsin eru mikið notuð um þessar mundir en standa hins vegar tóm á sumrin og haustin. mbl.is/Kristinn

Verið er að ljúka vinnu við samningu draga að frumvarpi um lækkun fasteignaskatts á hesthús í þéttbýli. Reiknað er með að Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, kynni frumvarpið á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.

Mörg sveitarfélög, þar á meðal Reykjavík, hækkuðu fasteignaskatt á hesthúsum nú í upphafi árs. Töldu þau skylt að gera það vegna úrskurðar yfirfasteignamatsnefndar. Skatturinn margfaldaðist hjá hesthúsaeigendum og hafa hestamenn mótmælt kröftuglega.

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis tók málið upp að beiðni borgarinnar og óskaði eftir því að innanríkisráðuneytið léti vinna breytingar á lögunum þannig að fasteignaskattur á hesthúsum yrði sá sami og á íbúðarhúsum og sumarbústöðum, eins og áður var, en ekki eins og á atvinnuhúsnæði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert