Láglaunastörfum fjölgar ört

mbl.is/Kristinn

Fækkun fólks á atvinnuleysisskrá virðist einkum bundin við þá sem hafa aðeins lokið grunnskólaprófi, en ríflega sextán sinnum fleiri í þeim hópi hafa farið af skránni en háskólamenntaðir.

Alls voru 4.319 á atvinnuleysisskrá í júní í fyrra með grunnskólapróf en þeim hefur nú fækkað um rúmlega þúsund og voru 3.283 í júní síðastliðnum. Til samanburðar voru 1.609 á atvinnuleysisskrá með háskólamenntun í júní 2012 en 1.546 í júní sl. Fækkaði þeim því um 63 milli ára, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Að sögn Karls Sigurðssonar, sérfræðings hjá Vinnumálastofnun, má draga þá ályktun af fjölgun starfa innan mismunandi aldurshópa að láglaunastörfum hjá ungu fólki hafi fjölgað meira en betur launuðum störfum háskólamenntaðs fólks.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert