Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur átt í nógu að snúast í dag.
Rétt fyrir hádegi var bifreið stöðvuð í Tindaseli þar sem ökumaðurinn var grunarður um ölvun við akstur.
Skömmu eftir hádegi varð umferðarslys á Breiðholtsbraut, þar sem einn var fluttur á slysadeild. Líðan hans er sögð eftir atvikum. Loka þurfti Breiðholtsbrautinni um þriggja kortéra skeið.
Um kortér yfir eitt var tilkynnt um þjófnað úr verslun í Reykjavík. Klukkan þrjú var svo tilkynnt um þjófnað úr kirkju.
Kortéri síðar var svo ökumaður stöðvaður á Rauðarárstíg, grunaður um vímuefnaakstur. Þar að auki var maðurinn réttindalaus og með fíkniefni í bílnum.