Ölvuð reykti á salerni í flugvél

Vél frá Wow-air.
Vél frá Wow-air.

Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á Suðurnesjum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrradag vegna farþega, konu á þrítugsaldri, sem verið hafði til vandræða í flugvél WOW-air. Konan var verulega ölvuð um borð og hafði meðal annars reykt inni á salerni vélarinnar með þeim afleiðingum að viðvörunarkerfið fór í gang. Árangurslaust hafði reynst að ræða við hana svo hún væri til friðs í ferðinni.

Konan var færð til upplýsingatöku í varðstofu flugstöðvardeildar lögreglunnar, þar sem hún kvaðst iðrast framkomu sinnar. Að því búnu fékk hún að halda leiðar sinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert