Skolp flæðir og hætta á saurgerlamengun

Hláka og miklar rigningar valda usla í skólpdælustöðinni við Skeljanes
Hláka og miklar rigningar valda usla í skólpdælustöðinni við Skeljanes mynd/Reykjavíkurborg

Skólpdælustöðin við Skeljanes hefur verið á yfirfalli síðastliðna sólarhringa vegna mikilla rigninga og hláku. Því er hætta á að saurgerlamengun í sjó verði yfir viðmiðunarmörkum næstu daga.

Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík vill af þessum sökum ráða fólki frá því að synda í sjónum í Fossvogi, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert