Í dag var síðari opnun tilboða vegna fullnaðarhönnunar nýs meðferðarkjarna vegna byggingar nýs Landspítala. Meðferðarkjarninn, sem áætlaður er að verði 58.500 m2, verður hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut. Fullnaðarhönnun byggir á þeirri forhönnun sem liggur nú fyrir.
Meðferðarkjarninn verður ein af fjórum nýbyggingum við Landspítalann og sú stærsta, segir í fréttatilkynningu um tilboðin.
Kostnaðaráætlun var kr. 2.740.500.000.
Fjögur tilboð voru opnuð frá eftirtöldum aðilum:
Lægsta tilboðið var frá Corpus 3, eða sem nemur 51% af kostnaðaráætlun.
Corpus 3 hópurinn samanstendur af VSÓ verkfræðistofu, VJI verkfræðistofu, Hornsteinar arkitektar og Basalt arkitektar.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir tilboðin sem opnuð voru í dag gefa tilefni til bjartsýni og veita framkvæmdum við nýjan Landspítala aukinn byr í seglin. „Meðferðarkjarninn er ein af fjórum nýbyggingum sem áformað er að reisa við Hringbraut og jafnframt sú stærsta þeirra, eða 58.500 m². Það munar því miklu í kostnaði að hönnuðir skuli færir um að taka að sér verkið fyrir rúman helming þess fjár sem áætlanir gerðu ráð fyrir.“