Tilkynning barst í kvöld um sinueld á Kjalarnesi og er slökkvilið höfuðborgarsvæðisins að störfum þar. Einnig barst tilkynning um eld í gámi við Borgaskóla í Grafarvogi sem greiðlega gekk að slökkva.
Uppfært 23:03:
Slökkvilið er nú að ljúka störfum á Kjalarnesi. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var um nokkuð mikinn eld að ræða en verið er að slökkva í síðustu glæðunum. Segir slökkvilið það heppilegt að eldurinn kom upp á svæði sem er afgirt af vegum og órækt og olli því ekki eins miklu tjóni og annars hefði getað orðið.