Sólveig Anna Aradóttir kórstjóri mun leysa Jón Stefánsson kórstjóra af í Langholtskirkju til vors.
Sólveig hefur lokið BA gráðu úr skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands og kirkjuorganistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Hún er sem stendur í kantorsnámi í Tónskóla Þjóðkirkjunnar.
Í tilkynningu á Facebook-síðu Gradualekórs Langholtskirkju kemur fram að Jón glími við veikindi og því muni Sólveig Anna stjórna kórnum í hans stað fram til vors.