Maður á níræðisaldri lést er bíll hans fór í höfnina í Ólafsvík síðdegis í gær.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu, að maðurinn, sem var einn í bílnum, hafi komið akandi niður á bryggjuna og virðist síðan hafa misst stjórn á honum, með þeim afleiðingum að bíllinn fór yfir bryggjukantinn og hafnaði á hvolfi í höfninni.
Lífgunartilraunir hófust strax er búið var að ná bílnum upp úr höfninni en þær báru ekki árangur.
Málið er í rannsókn hjá rannsóknardeild Lögreglunnar á Vesturlandi.