Fasteignasalan Eignamiðlun auglýsti á dögunum til sölu einbýlishús á 190 milljónir króna.
Húsið er um 450 fermetrar að stærð og stendur við sjávarsíðuna í Skerjafirði, en það var byggt árið 1983.
„Það hafa verið að seljast eignir á þessu bili þótt þær séu ekki margar. Þetta eru tölur sem við höfum séð áður fyrir eign af þessari stærð og á þessum stað. Það er alltaf viss markaður fyrir þessar eignir,“ segir Kjartan Hallgeirsson, fasteignasali hjá Eignamiðlun, í Morgunblaðinu í dag.
Hér er hægt að skoða myndir og upplýsingar um húsið