Handtekin í mjög slæmu ástandi

mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók konu sem var í mjög annarlegu ástandi á ellefta tímanum í gærkvöldi.  Konan hafði verið á veitingahúsi og farið frá ógreiddum reikningi.  Konan brást illa við afskiptum lögreglu og er vistuð í fangageymslu sökum ástands.

Lögreglan sektaði á fimm tímum í nótt 27 bifreiðar fyrir að þeim var lagt ólöglega, á gangstéttum, göngustígum, umferðareyjum ofl. í Mosfellsbæ, Grafarvogi og Grafarholti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert