Ungmenni játuðu íkveikju

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á Suðurnesjum handtók fimm ungmenni í lok síðustu viku sem hafa orðið uppvís að því að hafa verið völd að íkveikju, innbrotum og öðrum spellvirkjum í umdæminu nýverið.  Ýmist voru tveir eða þrír úr hópnum við verknaðina.

Hluti ungmennanna, sem eru á aldrinum 17 – 20 ára, hafa játað að hafa farið inn í geymsluhúsnæði í eigu Sandgerðisbæjar aðfaranótt sunnudagsins 8. maí og kveikt í því. Munir, tæki og húsið sjálft gjöreyðilögðust í eldinum, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Þá brutust ungmennin inn í húsnæði Nesfisks og unnu þar miklar skemmdir. Húsgögn, hillur og eldhústæki höfðu verið brotin og og tölva og loftpressa, sem heldur vinnslunni gangandi, skemmdar. Einnig hafði olíu verið hellt yfir gaskúta í húsnæðinu. Loks var brotist inn í gróðrarstöð í Sandgerði og einnig áhaldahús Sandgerðisbæjar og skemmdir unnar á báðum stöðum.

Sum ungmennanna voru innan 18 ára aldurs og voru foreldrar þeirra viðstaddir skýrslutökur lögreglu. Þá verður athæfi þeirra tilkynnt barnaverndarnefnd að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert