Einn Íslendingur var með allar tölurnar réttar í Víkingalottói í dag og vann hann 53,4 milljónir. Auk hans var einn Norðmaður sem vann fyrsta vinning. Þá fékk einn íslenskur spilari annan vinning í Jókernum og fær hann 100 þúsund krónur í sinn hlut.
Vinningsmiðinn sem væntanlega er góð jólagjöf var seldur í Olísbásnum í Keflavík. Vinningsmiðinn í Jókernum var seldur í Fjarðarkaupum.
Vinningstölurnar í Víkingalottói eru 2, 15, 33, 34, 37 og 38. Bónustölur eru 7 og 47.