Andlát: Þórir Jónsson

Þórir Jónsson
Þórir Jónsson

Þórir Jónsson framkvæmdastjóri lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 1. júlí síðastliðinn, á nítugasta og fyrsta aldursári.

Þórir fæddist í Reykjavík 22. ágúst 1926, sonur Jóns Ragnars Jónssonar skipasmiðs og Sigríðar Hannesdóttur verkakonu. Hann lauk námi í bifvélavirkjun 1946. Þórir var umsvifamikill meðal annars í iðnaði, viðskiptum og íþróttum. Þórir stofnaði og rak vélaverkstæðið Þ. Jónsson og Co., hann rak um margra ára skeið Fordumboðið Svein Egilsson og var einn helsti baráttumaður stofnunar skipafélagsins Bifrastar, sem gerbreytti bílainnflutningi til Íslands. Þá sat hann í stjórn Reykjaprents sem stóð að útgáfu Vísis og DV um árabil.

Þórir keppti fyrir Íslands hönd í svigi og bruni á vetrarólympíuleikunum í St. Moritz árið 1948, fyrstu vetrarólympíuleikunum sem Ísland keppti á. Hann var virkur baráttumaður framþróunar á aðbúnaði og umgjörð til skíðaiðkunar. Einnig gegndi Þórir ýmsum félagsstörfum; var formaður Bílgreinasambandsins, formaður skíðadeildar KR, formaður Skíðasambands Íslands og félagi í Rótarýklúbbi Reykjavíkur. Þá var hann sæmdur heiðursstjörnu Skíðasambands Íslands og gullmerki KR með lárviðarsveig fyrir störf sín í þágu skíðaíþróttarinnar.

Þórir lætur eftir sig eiginkonu, Jósefínu Láru Lárusdóttur, og fjögur börn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert