Þrír bílar lentu í árekstri á Suðurlandsvegi til móts við afleggjara inn í Heiðmörk um klukkan 20 í kvöld.
Samtals voru tíu manns í bílunum þremur og voru tveir fluttir á slysadeild Landspítalans með minniháttar meiðsl.
Ekki fengust upplýsingar nákvæmlega um hver tildrög árekstursins voru en bílarnir voru allir að aka í sömu átt og um aftanákeyrslur var að ræða.