Tveir hafa verið fluttir á sjúkrahús eftir harðan árekstur fimm bíla á mótum Hringbrautar og Njarðargötu. Miklar tafir urðu á umferð vegna slyssins að sögn vegfarenda.
Tvö minniháttar umferðaróhöpp komu til kasta lögreglunnar á Suðurlandi í morgun. Ekið var á mann sem var að skipta um dekki á bíl við Skóga undir Eyjafjöllum en engin slys urðu á fólki.
Vörubifreið var síðan ekið útaf undir Ingólfsfjalli en engin slys urðu heldur á fólki þar.