Lögreglan á Suðurnesjum er að leita að hvítum Volkswagen golf með skráningarnúmerinu ZG K81 sem stolið var frá bifreiðastæðinu við Bláa lónið. Lögreglan óskar vinsamlegast eftir að því að þeir sem hafi upplýsingar um hvar bifreiðin er niðurkomin hafi samband í síma 444-2200.
Með fréttinni er af sambærilegum bíl og var stolið.