Lögreglan á Suðurnesjum leitar að Elvari Loga, 8 ára.
Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum á Facebook er óskað eftir aðstoð Suðurnesjabúa, en Elvar Logi hefur ekki skilað sér heim eftir að skóla lauk í Keflavík. Hann er búsettur í Njarðvík.
Elvar Logi er með Barcelona-skólatösku og klæddur í bláa úlpu með loðkraga eða í bláum og gulum snjógalla.
Þeir sem búa yfir vitneskju um Elvar Loga eða ferðir hans eru beðnir um að hafa strax samband við lögreglustjórann á Suðurnesjum á Facebook eða í gegnum 1-1-2.
Uppfært klukkan 21:40:
Elvar Logi er fundinn, heill á húfi. Lögreglan þakkar fyrir veitta aðstoð.