Múrsteinar féllu af vörubíl

Hluti múrsteinanna sem féllu af vörubílnum.
Hluti múrsteinanna sem féllu af vörubílnum. mbl.is/Eggert

Miklar umferðartafir urðu í Ártúnsbrekkunni eftir að múrsteinar féllu á götuna af vörubíl sem var á leið í vesturátt.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um óhappið laust eftir klukkan eitt og var einn lögreglubíll sendur á vettvang.

Engin slys urðu á fólki.

Þegar ljósmyndara mbl.is bar að garði var verið að ljúka við að hreinsa múrsteinana af götunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert