Maðurinn sem særðist alvarlega þegar hann var stunginn á Austurvelli aðfaranótt sunnudags liggur enn þungt haldinn og í lífshættu á sjúkrahúsi. Lögregla hefur yfirheyrt annan mann sem einnig var stunginn.
Íslenskur karlmaður stakk tvo albanska karlmenn en þeir voru báðir á þrítugsaldri. Eins og áður sagði særðist annar maðurinn alvarlega en hinn hlaut töluverða áverka en þeir voru ekki lífshættulegir.
Maðurinn sem er grunaður um verknaðinn situr í gæsluvarðhaldi til 15. desember.
Frétt mbl.is: Annar mannanna enn í lífshættu
Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir að lögregla vilji ekki gefa út hvað komið hefur fram í yfirheyrslum yfir hinum grunaða.
Annar mannanna sem var stunginn var yfirheyrður í gær og Grímur segir að framburður hans sé ágætur, án þess að vilja fara út í smáatriði.