Opið verður í skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli í dag. Einnig verður skíðasvæði Ísafjarðarbæjar opið sem og svæðið á Siglufirði.
Í Hlíðarfjalli verður opið milli klukkan 10 og 16. Stillt og fallegt veður er í fjallinu en nokkuð kalt.
Á skíðasvæði Ísafjarðarbæjar er um 4 stiga frost og hægur vindur. Þrjár lyftur verða opnar sem og gönguskíðabrautir.
Skíðasvæðið Skarðsdal á Siglufirði verður opið í dag milli 11 og 16. Klukkan 9 í morugn var logn og 5 stiga frost.