Styðja færeyska leikskólakennara í verkfalli

Leikskólakennarar í Færeyjum hafa lagt niður störf.
Leikskólakennarar í Færeyjum hafa lagt niður störf. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Haraldur F. Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, sendi fyrir hönd félagsins stuðningsyfirlýsingu og baráttukveðjur til færeyskra leikskólakennara sem nú eru í verkfalli. Þeir lögðu niður störf í gærmorgun og krefjast betri launakjara.   

„Laun og starfsaðstæður leikskólakennara eiga að vera sambærileg og samkeppnisfær við aðra sérfræðinga. Það eru engin málefnaleg rök fyrir því að aldur nemenda eigi að ráða launasetningunni. Það er fráleitt árið 2017 að leikskólakennarar hafi lægri laun en kennarar á öðrum skólastig.“ Þetta kemur meðal annars fram í yfirlýsingunni sem er á íslensku og færeysku. Greint er frá þessu á vef Kennarasambands Íslands.  

Þroskaþjálfafélag Íslands hefur einnig sent færeyskum leikskólakennurum baráttukveðjur.

Haraldur F. Gíslason formaður Félags leikskólakennara.
Haraldur F. Gíslason formaður Félags leikskólakennara. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert