Undirbúa opnun neyslurýma

Svandís Svavarsdóttir.
Svandís Svavarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett af stað vinnu í velferðarráðuneytinu til að undirbúa opnun neyslurýma fyrir langt leidda vímuefnaneytendur. Neyslurými sem þessi eru þekkt úrræði erlendis og byggjast á hugmyndafræði skaðaminnkunar.

Þetta kemur fram á vefsíðu Stjórnarráðs.

Alþingi samþykkti í maí árið 2014 ályktun um að stefna í vímuefnamálum skyldi endurskoðuð „á grundvelli lausnamiðaðra og mannúðlegra úrræða, á forsendum heilbrigðiskerfisins og félagslega kerfisins, til aðstoðar og verndar neytendum efnanna og félagslegum réttindum þeirra, aðstandendum þeirra og samfélaginu í heild. 

Rökin fyrir sérstökum neyslurýmum byggjast á því að þeir sem eiga við mestan vímuefnavanda að etja stunda neyslu sína oft við hættulegar og heilsuspillandi aðstæður sem valda enn meiri skaða en ella og stuðla að veikindum og jafnvel dauða. Markmiðið er fyrst og fremst að þeir notendur fíkniefna sem um ræðir geti neytt þeirra við eins mikið öryggi og kostur er við þessar aðstæður,“ kemur meðal annars fram á vefsíðu Stjórnarráðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert