Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrot í skartgripaverslun við Laugaveg um klukkan fjögur í nótt. Höfðu þjófarnir spennt upp hurð á versluninni og látið síðan greipar sópa.
Þá var tilkynnt um innbrot á heimili í Kópavogi á áttunda tímanum í gærkvöldi. Þar hafði verið farið inn um glugga, en ekki liggur fyrir hverju var stolið.