Í fíkniefnaakstri með barn í bílnum

Ökumaður, sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði um helgina vegna gruns um fíkniefnaakstur, reyndist vera með unga dóttur sína í bílnum. Er þetta í annað skipti á skömmum tíma sem þessi sami einstaklingur er stöðvaður í akstri af þessum sömu sökum. Var ökumaðurinn handtekinn og málið jafnframt tilkynnt til barnaverndarnefndar, að því er segir í fréttatilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum.

Þá var annar ökumaður einnig handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Lögregla hafði líka afskipti af þremur einstaklingum á gistiheimili í umdæminu sem reyndust vera í mjög annarlegu ástandi. Í herbergi sem þeir voru í reyndist vera talsvert magn af hvítu efni í neysluumbúðum, sem talið er vera fíkniefni. Einn þremenninganna reyndist sömuleiðis vera með meint kókaín innan klæða. Voru mennirnir handteknir og færðir á lögreglustöð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert