Tortilla-flögur innkallaðar

Tortilla-flögurnar sem um ræðir.
Tortilla-flögurnar sem um ræðir. Ljósmynd/Aðsend

Icepharma  hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði Trafo Tortilla Chips Chili-flögur vegna þess að varan er merkt glútenlaus en inniheldur glúten.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

„Fullyrt er á umbúðum vörunnar að hún sé glútenlaus (e. gluten free) en til að mega nota þessa fullyrðingu við markaðssetningu á matvælum mega þau ekki innihalda meira en 20 mg/kg af glúteni. Við innra eftirlit framleiðanda hefur komið í ljós að varan inniheldur meira en 20 mg/kg af glúteni og er hún því ekki örugg fyrir einstaklinga sem eru með ofnæmi eða óþol fyrir korni sem inniheldur glúten,“ segir í tilkynningunni.

Þar er tekið fram að varan sé skaðlaus fyrir þá sem eru ekki viðkvæmir fyrir glúteni.

„Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir glúteni eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt eða til Icepharma, Lynghálsi 13, milli 8-16 alla virka daga. Nánari upplýsingar fást hjá Icepharma í síma 540 8000,“ segir í tilkynningunni.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert