Allt á kafi í snjó á Reykjanesi

Vefmyndavél Vegagerðarinnar

Mjög hefur snjóað á Reykjanesi í nótt og að sögn lögreglu á Suðurnesjum hefur snjóað mjög mikið frá því tæplega þrjú í nótt. Ökumenn eru beðnir um að fara varlega enda ekki búið að ryðja. Ekkert hefur snjóað á höfuðborgarsvæðinu.

Telja lögreglumenn að ekki sé minna en 20 cm jafnfallinn snjór í Reykjanesbæ og enn snjói þar. Í vefmyndavélum Vegagerðarinnar sést að það er töluverður snjór á Reykjanesbraut og nauðsynlegt að fara varlega í umferðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka