Kona á þrítugsaldri hefur verið ákærð af embætti héraðssaksóknara fyrir að hafa sparkað í kynfæri lögreglumanns sem var við skyldustörf. Samkvæmt ákæru málsins sparkaði konan í lögreglumanninn við Fiskislóð í Reykjavík í mars í fyrra.
Farið er fram á að konan verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.