Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heldur til Berlínar, höfuðborgar Þýskalandi, á sunnudaginn þar sem hún mun funda með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
Þar segir að Katrín muni ennfremur taka þátt í dagskrá fullveldishátíðar á vegum sendiráðs Íslands í Berlín og ávarpa jafnréttisráðstefnu sem ber yfirskriftina DÓTTIR þar sem meðal annars verður fjallað um samræmingu vinnu og fjölskyldulífs.