Hlýtt loft langt sunnan úr höfum

Svona verður veðrið á hádegi í dag, mánudag.
Svona verður veðrið á hádegi í dag, mánudag. Skjáskot/Veðurstofa Íslands

Hægt og bítandi mun hlýna á landinu næstu daga og er útlit fyrir að miðvikudagur og fimmtudagur verði þeir hlýjustu í vikunni. Spár gera hins vegar ráð fyrir því að það kólni dálítið um næstu helgi.

„Hins vegar til að fá svona hlýindi þarf að fá loft ættað langt sunnan úr höfum og því fylgir gjarnan væta og þannig verður það einnig í þetta sinn,“ skrifar veðurfræðingur Veðurstofu Íslands á vef stofnunarinnar í morgun. „Hins vegar verður ójafnt gefið því rigningin verður einkum bundin við vestanvert landið og eitthvað austur með suðurlandinu og aðrir landshlutar gætu fengið einhverja úrkomu síðan um helgina þegar kólnar aftur.“

Veðurvefur mbl.is

Veðurhorfur næstu daga er þessi:

Næsti sólarhringur:

Austan- og suðaustan 8-15 m/s sunnan- og vestantil, hvassast við ströndina, en annars hægari vindur. Dálitlar skúrir eða él á sunnanverðu landinu, en annars yfirleitt bjartviðri. Hiti víða 1 til 7 stig að deginum, en á köflum talsvert frost í innsveitum í nótt. 
Suðlægari og hlýnar heldur á morgun, annars svipað veður.

Á þriðjudag:
Suðaustan 8-15 m/s og dálítil súld sunnan- og vestanlands, hvassast við ströndina, en annars hægari vindur og þurrt. Hlýnar í veðri og hiti 2 til 8 stig síðdegis, mildast vestast. 

Á miðvikudag:
Sunnan- og suðaustanátt, 10-15 m/s og rigning á vestanverðu landinu, en annars hægari og bjartviðri norðaustanlands. Hiti víða 3 til 8 stig. 

Á fimmtudag:
Fremur mild suðlæg átt og rigning með köflum vestantil, en annars þurrt. 

Á föstudag:
Austlæg og síðar breytileg átt og víða rigning. Hiti 3 til 8 stig að deginum. 

Á laugardag:
Austlæg átt og rigning austanlands, en hæg vestlæg átt og þurrt að mestu vestantil. Heldur svalara. 

Á sunnudag:
Útlit fyrir norðlæga eða breytilega átt með úrkomu í flestum landshlutum. Hiti 0 til 6 stig fyrir daginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert