Ný stjórn Ríkisútvarpsins valin

Valin var ný stjórn Ríkisútvarpsins á þingfundi á Alþingi í dag. Aðalmenn eru Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Jón Ólafsson, Brynjólfur Stefánsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Kári Jónasson, Mörður Árnason, Guðlaugur Sverrisson, Lára Hanna Einarsdóttir og Birna Þórarinsdóttir.

Varamenn í stjórn Ríkisútvarpsins eru Jón Jónsson, Erlingur Sigurðarson, Sjöfn Þórðardóttir, Marta Guðrún Jóhannesdóttir, Jóhanna Hreiðarsdóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Sigríður Valdís Bergvinsdóttir, Mörður Ingólfsson og Björn Gunnar Ólafsson.

Tveir listar voru lagðir fram sem innihéldu samanlagt jafnmarga einstaklinga og sæti eiga í stjórn Ríkisútvarpsins og fyrir vikið fór ekki fram kosning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert