„Þetta er 3.200 fermetrar og 13 metrar að hæð. Ég er ekki alveg búinn að ákvarða hvort þetta sé það stærsta í Evrópu en þetta er með þeim stærri,“ segir Baltasar Kormákur leikstjóri um nýtt kvikmyndaver RVK Studios, sem var formlega opnað í Gufunesi í dag.
Í samtali við mbl.is segir Baltasar að hann vonist til þess að kvikmyndaverið verði íslenskum kvikmyndabransa til framdráttar. „Við ætlum að styðja verðinu í hóf þannig að íslenski bransinn geti unnið hér líka,“ segir Baltasar en einnig segir hann að til greina komi að stórir erlendir samstarfsaðilar eins og Netflix og Universal Studios nýti sér kvikmyndaverið í Gufunesi.
Kvikmyndiðnaðurinn er „leyndarmálabransi“ að sögn Baltasars, en hann segist hafa fengið fyrirspurnir um stórar tökur erlendra aðila í Gufunesi frá innlendum aðilum en ekki sjálfur fengið að vita um hverja ræðir. Þrátt fyrir að formlega opnunin hafi bara verið í dag sé nokkuð síðan að áhugi á því að nýta kvikmyndaverið fór af stað.
„Svo vonandi hjálpar þetta líka þeim eru í þjónustubransanum við að ná meiri og stærri verkefnum til landsins sem þá geta tekið lengur hérna þegar þessar aðstæður eru til staðar. Menn oft að taka upp eitthvað upp á hálendi og þá er gott að hafa stúdíó hérna líka til að geta tekið „weather-covers“ og hægt að byggja sett. Við höfum trú á því að við getum byggt hérna upp alvöru kvikmyndaiðnað og þetta sé hluti af þeirri þróun,“ segir Baltasar.
14 kílómetrar af hitaleiðslum voru lagðir í gólf kvikmyndaversins, sem áður hýsti Áburðarverksmiðjuna.
„Þetta er sennilega eina stúdíóið í heiminum sem er með upphitað gólf. Ég hef aldrei heyrt um það, en við erum með kaldar aðstæður og til að þurfa ekki að vera með blásara í gangi þá ákváðum við að setja hitakerfi í gólfið,“ segir Baltasar og bætir við að þrátt fyrir að þetta sé einungis fyrsti áfangi uppbyggingarinnar í Gufunesi sé kvikmyndaverið af þeim gæðum að það sé „vel frambærilegt í þessum bransa,“ en planið sé að gera enn betur.
„Þetta er bara fyrsti áfangi í miklu stærri hugmynd, sem er að gera þorp fyrir skapandi greinar. Það er náttúrlega stóri draumurinn að hérna gerist eitthvað sem við höfum ekki séð gerast áður í Reykjavík og það verði svona þjöppun á kvikmyndabransanum og öðrum brönsum.“
Baltasar segir það raunar nú þegar farið að gerast. „Það eru nú þegar farnar að rjúka út þessar frekar illa förnu fasteignir sem að menn eru að fara að endurbæta og gera flottar og svo verða líka nýbyggingar og svona.“
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynnti deiliskipulag Gufunessins við opnunina í dag og Baltasar hrósar honum og meirihluta borgarstjórnar fyrir samstarf undanfarinna ára.
„Það er búið að vera frábært að vinna með þeim og það er mikil framtíðarsýn í þeirra plönum, það eru ylstrandir og sjósundlaugar og bátaferðir og ég held að þetta geti orðið alveg æðislegt,“ segir Baltasar Kormákur.
Aðalskipulag hefur ekki verið samþykkt fyrir svæðið, en Baltasar vonast til þess að það verði með vorinu. Að því loknu á Baltasar von á því að allt fari í gang á svæðinu.
„Menn kannski fara sér rólega í því á meðan það er ekki komið aðalskipulag, en ég hef trú á næstu árum og að á næstu árum muni rísa hérna eitthvað mjög sérstakt sem menn hafa ekki séð áður.“