Styrkja útgáfu 55 verka

Miðstöð íslenskra bókmennta.
Miðstöð íslenskra bókmennta.

Miðstöð íslenskra bókmennta hefur nú úthlutað 30 milljónum króna í útgáfustyrki til 55 verka og það er hækkun um 6,5 milljónir króna milli ára. Alls bárust 93 umsóknir og sótt var um ríflega 90 milljónir króna.

Verkin sem hlutu styrki að þessu sinni eru af ýmsum toga; fræðirit, handbækur, skáldverk og heimildarit um náttúru Íslands, menningu, tungu, listir og fleira, að því er segir í fréttatilkynningu.

Þeir sem hafa fengið styrk í ár

Meðal verka sem hlutu útgáfustyrki í ár eru:

  • Íslensk flóra eftir Hörð Kristinsson, Þóru Ellen Þórhallsdóttur og Jón Baldur Hlíðberg. Útgefandi: Forlagið
  • Mosar á Íslandi eftir Ágúst H. Bjarnason. Útgefandi: Ágúst H. Bjarnason
  • Íslensk nótnahandrit 1100-1800 eftir Árna Heimi Ingólfsson. Útgefandi: Crymogea
  • Dýrafræði eftir Örnólf Thorlacius og Lárus Thorlacius. Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag
  • Íslenskir heyskaparhættir eftir Bjarna Guðmundsson. Útgefandi: Bókaútgáfan Opna
  • Öræfahjörðin. Saga hreindýra á Íslandi á 18.-21. öld eftir Unni Birnu Karlsdóttur. Útgefandi: Sögufélag
  • Saga revíunnar á Íslandi eftir Unu Margréti Jónsdóttur. Útgefandi: Skrudda
  • Hjarta Íslands eftir Gunnstein Ólafsson og Pál Stefánsson. Útgefandi: Veröld
  • Sjónarfur í samhengi 1. bindi: myndmál prentsögu Íslands frá 1844-1918 eftir Guðmund Odd Magnússon. Útgefandi: Listaháskóli Íslands
  • Glímuskjálfti, heildarútgáfa á verkum Dags Sigurðarsonar. Útgefandi: Forlagið
  • Reykjavík um aldamótin 1900 – með augum Benedikts Gröndal eftir Illuga Jökulsson og Ívar Gissurarson. Útgefandi: Sögur útgáfa

Meðal myndríkra barna- og ungmennabóka sem hlutu útgáfustyrki í ár eru:

  • Kjarval - Maðurinn sem fór sínar eigin leiðir eftir Margréti Tryggvadóttur. Útgefandi: Forlagið
  • Hin hliðin á jólunum eftir Rósu Þorsteinsdóttur, myndhöfundur Óskar Jónasson. Útgefandi: Mediaevaland
  • Skarphéðinn Dungal eftir Hjörleif Hjartarson, myndhöfundur Rán Flygenring. Útgefandi: Angústúra
  • Spennandi fróðleikur fyrir ungt fólk eftir Illuga Jökulsson, Ívar Bjarklind og Veru Illugadóttur. Útgefandi: Sögur útgáfa
  • Sólarhjólið eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson, myndhöfundur Högni Sigþórsson. Útgefandi: DIMMA
  • Stelpan sem týndi litla bróður sínum í ruslinu eftir Guðna Líndal Benediktsson, myndhöfundur Ryoko Tamura. Útgefandi: Bókabeitan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert