Þrír sóttu um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða sem velferðarráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í apríl síðastliðnum. Mun þriggja manna nefnd sem skipuð er af heilbrigðisráðherra meta hæfni umsækjenda.
Umsækjendur eru eftirtaldir:
Í tilkynningu á vef ráðuneytisins kemur fram að forstjóri beri ábyrgð á að Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
Heilbrigðisstofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisumdæmi Vestfjarða sem nær yfir sveitarfélögin Vesturbyggð, Tálknafjarðarhrepp, Ísafjarðarbæ, Bolungarvíkurkaupstað og Súðavíkurhrepp. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er með fjölmennustu vinnustöðum á Vestfjörðum þar sem starfa að jafnaði um 250 manns og er ársvelta stofnunarinnar um 2,2 milljarðar króna.