Stærsta skemmtiferðaskip sumarsins, Meraviglia, er væntanlegt til Reykjavíkur á laugardaginn.
Samkvæmt áætlun á skipið að leggjast að Skarfabakka klukkan átta að morgni og það mun láta úr höfn klukkan 14 á sunnudag.
Meraviglia er jafnframt stærsta skemmtiferðaskip sem komið hefur til landsins. Skipið er 171.598 brúttótonn, 316 metra langt, breiddin er 43 metrar og djúpristan tæpir níu metrar. Farþegar eru um 4.500 og í áhöfn 2.000 manns. Káetur og svítur farþeganna eru á 15 hæðum. Meraviglia er rúmlega 30 þúsund tonnum stærra en Preziosa, sem er stærsta skip sem komið hefur til landsins hingað til.