Sjómaðurinn er látinn

mbl.is/Sverrir

Maðurinn sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í norskt fiskiskip undan Suðausturlandi í gær er látinn, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum.

Maðurinn var norskur ríkisborgari.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á þriðja tímanum í gær, eftir að boð bárust frá skipinu um að slys hefði orðið um borð.

Norska skipið kom til hafnar í Vestmannaeyjum í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert