Skálinn í Landmannalaugum opnaður

Búið er að opna skála Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum.
Búið er að opna skála Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum. mbl.is/Árni Sæberg

Skáli Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum hefur verið opnaður fyrir ferðalanga, sem og öll almenn þjónusta við gesti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ferðafélaginu.

Skáli FÍ í Þórsmörk er einnig opinn, sem og öll almenn þjónusta á svæðinu.

Það styttist síðan í að aðrir skálar FÍ á Laugaveginum verði einnig opnaðir, en skálarnir við Álftavatn, Hvanngil og Emstrur verða opnaðir næstkomandi fimmtudag, 14. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert