Edda Björgvinsdóttir Borgarlistamaður Reykjavíkur 2018

Edda Björgvinsdóttir, Borgarlistarmaður Reykjavíkur 2018, Elsa Hrafnhildur Yeoman og Líf …
Edda Björgvinsdóttir, Borgarlistarmaður Reykjavíkur 2018, Elsa Hrafnhildur Yeoman og Líf Magneudóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Edda Björgvinsdóttir leikkona var í dag útnefnd Borgarlistamaður Reykjavíkur 2018 við hátíðlega athöfn í Höfða. Útnefningin  er heiðursviðurkenning til listamanns sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi.

Líf Magneudóttir, forseti borgarstjórnar, útnefndi Eddu við athöfnina og Elsa Hrafnhildur Yeoman, formaður menningar- og ferðamálaráðs, gerði grein fyrir einhuga vali ráðsins á Eddu. 

 „Þetta kom mér gjörsamlega á óvart. Ég veit ekki alveg hvort það er vegna þess að ég er kona á þessum aldri, gamanleikkona eaða gamanleikkona á þessum aldri,“ sagði Edda í samtali við blaðamann, en nánar verður rætt við hana í Morgunblaðinu á morgun.

Edda Björgvinsdóttir var kampakát í Höfða í dag.
Edda Björgvinsdóttir var kampakát í Höfða í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Edda Björgvinsdóttir er fædd í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð árið 1972, útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1978 og á seinni árum hefur hún stundað nám í menningarstjórnun og jákvæðri sálfræði.

Edda er landsmönnum að góðu kunn enda hefur hún skapað nokkra af þekktustu kvenkyns grín-karakterum Íslands. Hver man ekki eftir hinni færeysku Túrillu Jóhannson úr útvarpsþáttunum Úllen Dúllen Doff, eða Bibbu á Brávallagötunni sem á nokkrar af dásamlegustu afbökunum orðtaka og málshátta íslenskunnar eða öll hlutverkin sem hún lék með stæl í Heilsubælinu í Gervahverfi. Kvikmyndin Stella í orlofi gerir Eddu að stórstjörnu á Íslandi og má hiklaust halda því fram að vinsældir og langlífi þeirrar ágætu myndar er ekki síst vegna túlkunar Eddu á hinni, jákvæðu, meðvirku og stjórnsömu Stellu. Þá eru ótalin öll áramótaskaupin sem hún hefur tekið þátt í, bæði sem handritshöfundur og leikkona, uppistöndin, revíurnar og margt fleira. Sennilega má kinnroðalaust halda því fram að engin önnur íslensk kona hefur fengið jafn marga Íslendinga til að hlæja jafn oft, mikið og innilega og Edda Björgvinsdóttir.

Eddu var veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og viðurkenningarfé.
Eddu var veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og viðurkenningarfé. mbl.is/Kristinn Magnússon

Edda á líka sínar dramatísku hliðar og hefur á seinni árum sýnt stórleik bæði á sviði og í kvikmyndum, nú síðast í kvikmyndinni Undir trénu sem færði Eddu – Edduna auk þess að vera valin besta leikkona í aðalhlutverki af Cinema Scandinavia.

Edda hefur auk þess rekið eigið leikhús (GEB slf. Gríniðjan, List og Fræðsla, Fræðsluleikhúsið etc.) og leikið, leikstýrt og samið efni fyrir velflesta starfandi ljósvakamiðla á Íslandi.

Meðfram leiklistinni hefur Edda haldið fyrirlestra og námskeið í tjáningu, ræðumennsku, sjálfsstyrkingu, þjónustulund, húmor sem samskipta- og stjórntæki o.fl. í velflestum stórfyrirtækjum landsins sl. 18 ár og fyrir nánast öll fjölmennustu stéttarfélög landsins.

Edda hefur jafnframt skipulagt fjölmargar hvataferðir, námskeiðsferðir og óvissuferðir innan lands og utan, fyrir allskonar fyrirtæki, félagasamtök og hópa, erlenda og innlenda, þar að auki haldið úti einstökum kvennaferðum um allan heim allt frá því 1985 og fram á þennan dag.

Hún hefur starfað sem fararstjóri fyrir fjölmargar ferðaskrifstofur m.a. á Spáni, Grikklandi, Ítalíu, Englandi Þýskalandi, Frakklandi, Finnlandi og víðar og einnig boðið uppá sérhannaðar sjálfsstyrkingar- og gleðiferðir fyrir konur víða um heim,“ segir í tilkynningu frá borginni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert