Lögregla og sjúkralið voru kölluð út á tíunda tímanum vegna umferðarslyss skammt norðan við Akureyri, í vestanverðum Eyjafirði.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri virðist vera sem dekk hafi losnað undan vörubíl og í kjölfarið skollið beint framan á fólksbíl.
Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsli.