Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út að Krýsuvíkurvegi um klukkan átta í kvöld vegna elds í bíl. Eldurinn kviknaði þegar bíllinn var í akstri. Að sögn slökkviliðsins gekk vel að slökkva eldinn en bíllinn er illa farinn, ef ekki ónýtur.
„Það er nú oftast þannig að ef ekki tekst að slökkva eldinn á nokkrum mínútum þá fer illa fyrir bílnum,“ sagði varðstjóri slökkviliðsins í samtali við mbl.is.