Strætóbílstjóri svaf á ljósum

Bílstjórinn svaf á meðan þrjú græn ljós loguðu.
Bílstjórinn svaf á meðan þrjú græn ljós loguðu. mbl.is/Rax

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af strætisvagnabílstjóra í Kópavogi síðdegis í gær en vagn bílstjórans mun hafa verið kyrrstæður við umferðarljós á meðan þrjú græn ljós loguðu.

Í dagbók lögreglunnar segir að bílstjórinn hafi verið sofandi. 

Lögreglan segir að ekki hafi verið talin ástæða til frekari afskipta vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert