9.000 skráðir í Reykjavíkurmaraþon

„Þetta hefur gengið vel hingað til og ég held að krafturinn eigi bara eftir að aukast,“ segir Anna Lilja Sigurðardóttir, upplýsinga- og samskiptastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur, um skráningar í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer 18. ágúst. Nú þegar hafa ríflega 9.000 manns skráð sig til leiks, þar af 3.000 erlendir keppendur.

Að sögn Önnu er ráðgert að heildarfjöldi þátttakenda í hlaupinu verði í kringum 15.000 manns. „Staðan eins og hún er núna er á pari við sama tíma í fyrra. Þetta hefur verið svipaður fjöldi síðustu ár og ég á ekki von á öðru en að það haldist óbreytt í ár,“ segir Anna.

Í fyrra söfnuðust ríflega 100 milljónir króna í áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþonsins, en það var í fyrsta sinn sem það tókst. Öll renna áheitin til góðgerðarmála en nú þegar hafa safnast um 35 milljónir króna í tengslum við hlaupið í ár. „Við rufum 100 milljóna króna múrinn í fyrsta skipti í fyrra. Það væri náttúrulega mjög gaman að halda því og fara lengra. Þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel í ár og það hefur gengið vel að safna og skal engan undra enda ein stærsta fjáröflun á Íslandi,“ segir Anna og bætir við að í Reykjavíkurmaraþoninu sé hægt að vekja athygli á ýmsum góðum málum. „Þetta er gott svið fyrir einstaklinga sem eru að hlaupa auk þess sem félögin geta líka látið vita af sér,“ segir Anna.

Langvinsælast að hlaupa 10 km

Á síðustu árum hafa 10 kílómetrar verið sú vegalengd sem notið hefur mestra vinsælda meðal þátttakenda í hlaupinu. Anna segist ekki eiga von á öðru en að það haldist óbreytt. „Það eru yfirleitt um 7.000 manns sem taka þátt í því. Það er skemmtileg hlaupaleið auk þess sem fólk í mjög mismunandi formi getur farið þessa leið. Fólk er stutt vel á leiðinni og upplifunin er ólík öllu öðru,“ segir Anna. 

Spurð hvort Reykjavíkurmaraþonið muni stækka áfram á næstu árum segir Anna að erfitt sé að spá fyrir um það. „Þetta er ekki alveg orðið troðfullt þó að það sé orðið svolítið þröngt í miðbænum. Það er mögulega hægt að bæta við fólki í þessar styttri vegalengdir,“ segir Anna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert