Keyrt var á ljósastaur upp úr hádeginu við Hafnarstræti í Ísafjarðarbæ. Slysið varð við bæjarsjoppuna Hamraborg, sem er í næsta húsi við lögreglustöðina.
Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Vestfjörðum heyrðist inni á stöðinni þegar slysið varð og var lögreglan því snögg á vettvang.
Einn var í bílnum og slapp hann ómeiddur.