Júlíus heiðraður á Fiskideginum mikla

Ragnheiður Sigvaldadóttir, eiginkona Júlíusar, tók við heiðursverðlaunagrip fyrir hönd hans. …
Ragnheiður Sigvaldadóttir, eiginkona Júlíusar, tók við heiðursverðlaunagrip fyrir hönd hans. Jóhannes Hafsteinsson smíðaði gripinn. Ljósmynd/Bjarni Eiríksson

Júlíus Kristjánsson var heiðraður á Fiskideginum mikla á Dalvík í gær.

Frá upphafi hefur hátíðin heiðrað þá sem hafa með einhverjum hætti haft áhrif á atvinnusögu okkar og íslenskan sjávarútveg, að því er segir í tilkynningu.

Í ár var ákveðið að veita viðurkenningu fyrir framlag til menntunar sjómanna. Júlíus var heiðraður fyrir mikilvægan þátt hans í uppbyggingu og umsjón með skipstjórnarfræðslu á Dalvík.  

„Á áttunda áratug síðustu aldar hóf Júlíus að kenna nemendum við Gagnfræðaskóla Dalvíkur skipstjórnarfræði og meðferð veiðarfæra.

Árið 1981 heimilaði menntamálaráðuneytið að starfrækt yrði skipstjórnarbraut við Dalvíkurskóla og var forsenda þess að Júlíus Kristjánsson hefði umsjón með deildinni. Stýrimannaskólinn á Dalvík naut mikilla vinsælda strax frá upphafi og árið 1987 heimilaði ráðuneytið að kennsla færi einnig af stað á 2. stigi skipstjórnarnáms.

Í þau um 20 ár sem stýrimannaskólinn starfaði á Dalvík hafði Júlíus umsjón með náminu, en á þeim tíma útskrifuðust 190 nemendur af 1. stigi skipstjórnar og 134 með 2. stig frá skólanum. Margir þeirra eru farsælir skipstjórnarmenn,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert